Verndaðu það sem þér þykir kærast
Merki sem getur bjargað mannslífi
MedicAlert merkið varðveitir upplýsingar fyrir lækna og viðbragðsaðila
til þess að hægt sé að bregðast rétt við þegar mikið liggur við.
Fréttasafn
Hjúkrunafræðinemar komu í heimsókn í MedicAlert
Ertu að fara í ferðalag? Varstu búin að panta þér MedicAlert merki?
Öryggismerkin okkar eru alþjóðleg og tala fyrir merkisbera þegar mest á reynir.
Opnunartími um hátíðir
Opnum aftur á nýju ári mánudaginn 5. janúar.
Gjöf sem er bæði falleg og veitir öryggi








Þríþætt öryggiskerfi
A. Merki úr málmi
Merkið er borið í keðju um háls eða úlnlið. Á merkið eru skráð eftirfarandi atriði:
- Símanúmer vaktstöðvar á Íslandi sem hringja má í allstaðar úr heiminum án endurgjalds.
- Sjúkdómsgreining eða áríðandi upplýsingar fyrir viðkomandi
- Persónunúmer sem veitir aðgang að ýtarupplýsingum í tölvuskrá Slysa- og bráðadeildar.
B. Plastspjald með upplýsingum
Plastspjald í kreditkortastærð er haft í veski og hefur að geyma ítarlegri upplýsingar svo sem einkennisnúmer hjá MedicAlert, nafn og símanúmer aðstandenda og tveggja lækna sem þekkja til merkisberans. Einnig er skráð sjúkdómsgreining og upplýsingar um lyf sem merkisberi tekur.
C. Tölvuskrá í vaktstöð
Ýtarlegustu upplýsingarnar eru í vörslu Slysa- og bráðadeildar Landspítalans, en þar er vaktþjónusta fyrir neyðarnúmer MedicAlert. Þangað má hringja allan sólarhringin, merkisbera að kostnaðarlausu hvaðan sem er úr heiminum, til að fá nauðsynlegar upplýsingar um sjúkdóm eða meðferð merkisberans.
Af hverju er þetta svona mikilvægt?
Þegar læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraflutningamenn, lögregluþjónar og aðrir sem koma að sjúklingi í neyð geta þeir með aðstoð MedicAlert merkisins fengið lífsnauðsynlegar upplýsingar á svipstundu, sem geta gert útslagið um gang mála í meðferðinni.
Oft segja áletranir á merkinu allt sem þarf, en einnig geta framangreindir aðilar hringt í neyðarnúmerið, gert grein fyrir sér og síðan fengið nánari upplýsingar, til dæmis um áríðandi lyfjanotkun.
Dæmi um sjúkdóma
- Insulin dependent diabetes (sykursýki)
- Coronary artery disease (kransæðaþrengsli)
- Addison’s disease (Addisonveiki)
- Kidney transplant (ígrætt nýra)
- Hemophilia (dreyrarsýki)
- Multible sclerosis (MS)
- Alzheimer’s disease
- Epilepsy (flogaveiki)
- Hjartasjúkdómar
- Bráðaofnæmi
- Einhverfa
- Asthma
Hvernig gerist ég félagi í MedicAlert?
Fyllið út skráningarformið og sendið okkur. Einnig má prenta skráningarformið út, fá aðstoð hjá lækni við að fylla það út og koma með það á skrifstofuna okkar.



