Þetta byrjaði allt fyrir 70 árum með einfaldri hugmynd. Staðfesta föður, sem vildi vernda dóttur sína fyrir banvænum ofnæmisviðbrögðum, varð að verkefni sem enn í dag er að breyta heiminum, eitt líf í einu.
Linda Collins var 14 ára gömul, þegar hún dag einn skar sig. Skurðurinn var svo djúpur að hún þurfti að fara á bráðamóttöku þar sem skurðurinn var saumaður.
Á bráðamóttökunni fylgdi læknirinn venjulegu ferli og gaf Lindu lyfi gegn stífkrampa. Linda hlaut nær banvæn ofnæmisviðbrögð og féll í dá.
Faðir hennar, Marion Collins sem var læknir, vissi af ofnæminu en hann var ekki á staðnum þegar atvikið átti sér stað.
Sem betur fer lifði Linda ofnæmiskastið af. En eftir þetta varð Dr. Collins staðráðinn í að finna lausn sem myndi vernda dóttur hans í neyðartilvikum.
Hann fékk hugmynd að einfaldri lausn til að gera heilbrigðisstarfsfólki kunnugt um ofnæmi hennar.
Þegar Linda, ferðaðist eftir þetta, bar hún pappírsmiða ritaðan af föður sínum, á armbandi sem hún átti. Skilaboðin á pappírsmiðanum voru skýr. Þar kom fram að Linda var með ofnæmi fyrir; aspiríni, súlfalyfjum og fleiru.


