Ný Facebook síða og Instagram

Ný Facebook síða og Instagram

Kæru MedicAlert viðskiptavinir, hagaðilar og aðrir velunnarar;

Í ágúst síðastliðnum varð félagið fyrir því óláni að óprúttnir aðilar tóku yfir Facebook síðu félagsins þannig að ekki er hægt að svara lengur fyrirspurnum sem þangað koma inn né gera nokkuð annað varðandi þá Facebook síðu. Þetta er afar leitt og bagalegt í ljósi þess að það voru yfir 6.000 fylgjendur á síðunni. 

Í kjölfarið hefur verið stofnað til nýrrar Facebook síðu ásamt Instagram síðu. Við biðlum nú til allra þeirra sem reiða sig á þjónustu MedicAlert, hagaðila sem og velunnarra og annarra áhugasamra um starfsemi og þjónustu MedicAlert að smella “læki” á nýju Facebook síðuna og Instagramið – og jafnframt að “af-líka” við eldri síðuna.

Ný Facebook síða: facebook.com/medicalertisland
Instagram: instagram.com/medicalert/

Gamla FB síðan er hér, endilega “af-líka” við hana í leiðinni til að lýsa frati á þessa leiðindapúka: facebook.com/medicalert.is/

Lesa fleiri fréttir

Ný vél til að áletra Medicalert merkin

Ný leiservél auðveldar vinnu við að útbúa MedicAlert merkin auk þess að bjóða upp á meiri gæði og hraðari afgreiðslu.
Lesa frétt

Takk fyrir samstarfið Magnea

Þann 1. febrúar 2025 lét Magnea Skjalddal Halldórsdóttir af störfum á skrifstofu Lions og MedicAlert. Við starfi hennar tók Sæunn Þórisdóttir.
Lesa frétt

Kvárdagurinn er 25. mars

MedicAlert merkin eru fyrir alla sem hafa eitthvað sem þeir vilja að fyrstu viðbragðsaðilar viti í neyðartilvikum.

Merkin eru fyrir öll kyn og allan aldur ...
Lesa frétt

MedicAlert á Íslandi

MedicAlert eru alþjóðleg öryggissamtök sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðarstundu.

Við erum á Facebook

verndaðu það sem þér þykir kærast

MedicAlert er alþjóðlegt öryggiskerfi fyrir sjúklinga með bráða eða hættulega sjúkdóma og ofnæmi

MedicAlert veitir öryggi gegn mistökum eða töf á réttri meðferð hjá sjúklingum ef þeir verða meðvitundarlausir eða af öðrum ástæðum ófærir um að gera sjálfir grein fyrir veikindum sínum.

Scroll to Top