MedicAlert í 70 ár

MedicAlert í 70 ár

Þetta byrjaði allt fyrir 70 árum með einfaldri hugmynd. Staðfesta föður, sem vildi vernda dóttur sína fyrir banvænum ofnæmisviðbrögðum, varð að verkefni sem enn í dag er að breyta heiminum, eitt líf í einu.

Linda Collins var 14 ára gömul, þegar hún dag einn skar sig. Skurðurinn var svo djúpur að hún þurfti að fara á bráðamóttöku þar sem skurðurinn var saumaður.

Á bráðamóttökunni fylgdi læknirinn venjulegu ferli og gaf Lindu lyfi gegn stífkrampa. Linda hlaut nær banvæn ofnæmisviðbrögð og féll í dá.
Faðir hennar, Marion Collins sem var læknir, vissi af ofnæminu en hann var ekki á staðnum þegar atvikið átti sér stað.

Sem betur fer lifði Linda ofnæmiskastið af. En eftir þetta varð Dr. Collins staðráðinn í að finna lausn sem myndi vernda dóttur hans í neyðartilvikum.

Hann fékk hugmynd að einfaldri lausn til að gera heilbrigðisstarfsfólki kunnugt um ofnæmi hennar.
Þegar Linda, ferðaðist eftir þetta, bar hún pappírsmiða ritaðan af föður sínum, á armbandi sem hún átti. Skilaboðin á pappírsmiðanum voru skýr. Þar kom fram að Linda var með ofnæmi fyrir; aspiríni, súlfalyfjum og fleiru.

Lesa fleiri fréttir

Sumaropnun 2026

Skrifstofa MedicAlert verður opin í sumar þriðjudaga til fimmtudaga. kl. 09:00 – 15:00. Lokað mánudaga og föstudaga. Sumaropnunin er frá 16. júní til 10. ágúst. ...
Lesa frétt

Dr. Björn Guðmundsson heiðraður

Anna Blöndal Fjölumdæmisstjóri á Íslandi veitti Birni Guðmundssyni  Kjaransorðuna á aðalfundi MedicAlert. En það er æðsta viðurkening sem Lions hreifingin á Íslandi veitir. Björn hefur ...
Lesa frétt

Aðalfundur MedicAlert var haldinn þann 16.4 2026

Aðalfundur fyrir árið 2025 var haldinn í Sal Lions í Kópavogi. Þar var tekin ákvörðun um að hækka árgjald merkisbera úr kr. 2.300 í kr. ...
Lesa frétt

MedicAlert á Íslandi

MedicAlert eru alþjóðleg öryggissamtök sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðarstundu.

Við erum á Facebook

verndaðu það sem þér þykir kærast

MedicAlert er alþjóðlegt öryggiskerfi fyrir sjúklinga með bráða eða hættulega sjúkdóma og ofnæmi

MedicAlert veitir öryggi gegn mistökum eða töf á réttri meðferð hjá sjúklingum ef þeir verða meðvitundarlausir eða af öðrum ástæðum ófærir um að gera sjálfir grein fyrir veikindum sínum.

Scroll to Top