Persónuverndarstefna

Upplýsingar um persónuverndarstefnu MedicAlert á Íslandi

Persónuvernd

MedicAlert hefur sett sér stefnu varðandi meðferð persónuupplýsinga til að tryggja að félagið fari eftir lögum um persónuvernd og meðhöndlun persónugreinanlegra gagna. Starfsmenn okkar eru skuldbundnir til að fara með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Öll trúnaðar gögn eru skráð og vistuð í kerfi MedicAlert innan tölvudeildar Landspítalans þannig að gögnin eru örugg. Hér á eftir útskýrum við hvernig við verndum gögnin þín og hvaða þýðingu það hefur fyrir þig.

Fyrirspurnir
Allar fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á netfangið medicalert@medicalert.is

MedicAlert notar vefkökur sjá nánar: https://medicalert.is/vefkokur/  Við hverja komu inn á vefinn okkar eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, um það efni sem notendur sækjast mest eftir o.fl. Engar tilraunir eru eða verða gerðar til að komast yfir frekari upplýsingar um hverja komu eða tengja saman við persónugreinanlegar upplýsingar.  

Þar getur jafnframt hver og einn notandi breytt sínu samþykki eða afturkallað það eftir eigin hentugleika.

Áframsending persónugreinanlegra gagna til þriðja aðila
MedicAlert deila ekki persónugreinanlegum gögnum um einstaklinga til þriðja aðila. Við skuldbindum okkur til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og munum ekki miðla á nokkurn hátt upplýsingum sem skráðar hafa verið í ofangreindum tilgangi til þriðja aðila án þín samþykkis eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Með notkun okkar á Google Analytics sendum við hins vegar frá okkur ópersónugreinanleg aðgangsgögn, þ.e. hvenær síðan var heimsótt, hversu lengi og hvaðan og þess háttar er greint fyrir tölulegar upplýsingar. Þetta notum við svo til að betrumbæta vefinn okkar. Lesa má nánar um Google Analytics hér.

Afturköllunarréttur 
Þú hefur rétt á að afskráð þig hvenær sem er. Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum netfang og síma.


Hlekkir
Vefsíðurnar okkar geta innihaldið hlekki á aðrar vefsíður. Þótt við gerum okkar ítrasta til að athuga þessa beinu hlekki, berum við ekki ábyrgð á efni vefsíðanna sem við hlekkjum á. Að auki berum við enga ábyrgð á efni vefsíðna sem hlekkja á okkar vefsíðu

verndaðu það sem þér þykir kærast

MedicAlert er alþjóðlegt öryggiskerfi fyrir sjúklinga með bráða eða hættulega sjúkdóma og ofnæmi

MedicAlert veitir öryggi gegn mistökum eða töf á réttri meðferð hjá sjúklingum ef þeir verða meðvitundarlausir eða af öðrum ástæðum ófærir um að gera sjálfir grein fyrir veikindum sínum.

Scroll to Top